06nóvember
Byrjuðum daginn snemma. Vorum komnar á bakka sundlaugarinnar kl 8.15 og kenndum öllum bekkjum grunnskólans sund fram að hádegi. Föstudagar eru sunddagar og engin kennsla inni í sal þá daga. Bekkirnir mæta þannig: 1. og 2. bekkur saman, 3. og 4. bekkur saman og svo framvegis. Tímarnir gengu mjög vel. Tímaseðlarnir orðnir betri og einnig framfarir við sundkennslu að sögn vettvangskennara. Áttum samstal við Ólann eftir kennsluna, hann var mjög ánægður með kjellurnar og bauð okkur að sjálfsögðu starf, en það verður ekki rætt frekar á vefnum að svo stöddu
02nóvember
Við byrjuðum daginn á að fara niður í grunnskóla til þess að vinna tímaseðla og klára að undirbúa okkur fyrir kennslu dagsins. Við eigum að kenna skólabaksund á morgun í öllum bekkjum og gerðum við 5 tímaseðla með mismunandi áherslum. Við byrjuðum svo að kenna niður í íþróttahúsi kl 13. Við vorum að kenna menntaskólanum í dag, fyrst 2. bekk og svo 3. bekk. Þetta var virkilega skemmtilegur og góður tími. Allt tókst vel þrátt fyrir að við höfum enga reynslu í að kenna hnit. Fyrst var farið í upphitun þar sem spaðar og flugur voru notaðar við almennar fitnessæfingar í framhaldi fórum við í almenn tækniatriði.Að lokum var deildarkeppni sem heppnaðist mjög vel. Að okkar mati stóðum við okkur nokkuð vel. Þeir sem ekki voru jákvæðir í byrjun vildur helst ekki hætta og fannst mjög gaman. Allir voru vel sveittir og sáttir eftir tímann. Við hittum einn nemandann upp í Samkaup daginn eftir tímann. Hún leggja fram kvörtun þar sem hún var með svo mikla strengi í framhandlegg að hún gat varla haldið á mjólkurfernu. Hér erum við að tala um vöðva sem heita flexor digitorum superficialis,flexor digitorum profundus og flexor carpi ulnaris:)
30október
Sökum þess að það er vetrarfrí í skólanum okkar þá erum við í fríi frá kennslu. Tímanum er þó vel varið við lærdóm þar sem viðfangsefnið er líffærafræði. Það verður mikill léttir þegar því prófi er lokið þ.a.e.s ef vel gengur. Við erum þó einnig að undirbúa kennslu fyrir fimmtudag þar sem við kennum menntaskólanum og svo er sunddagur hjá grunnskólanum á föstudag.
26október
Bringusund var þema dagsins. Við byrjum á 9.-10.bekk og síðan koll af kolli þar til við endum á 1.-2. bekk, alls fimm kennslustundir. Við skiptum kennslunni niður á okkur þar sem önnur okkar stýrði kennslunni á meðan hin var til aðstoðar við að leiðrétta. Það eru auðvitað kostir og gallar við að kenna í fámennum skólum en viljum við meina að í sundkennslu er ekkert nema gott að vera með svo fá nemendur. Við erum með 7- 10 í hverjum bekk og getum því sinnt hverjum og einum betur en ella. Við náum til dæmis að leiðrétta eftir hverja ferð þegar við erum að gera tækniæfingar og við sjáum því oftar en ekki hraðar framfarið í einstaka æfingum. Óli er frekar ánægður með okkur að okkar mati. Við erum farnar að koma tækniatriðum vel til skila með góðu og ásættanlegu orðalagi:)
26október
25.Oktober
Dagurinn tóks með eindæmum vel. Við vorum með viðveru við bóklega kennslu í allan dag og eyddum einnig dágóðri stund í vinnu við tímaseðlagerð. Við vorum sérstaklega ánægðar með hvernig tókst til viðverkefni dagsin. Verkefni sem við sjálfar udirbjuggum og áttum frumkvæði af. Skyndihjálparnámskeiðið sem við vorum með í dag tókst með rosalega vel að okkar mati. Ætlunin var að kenna í klukkutíma en þeir urðu 2. Við vorum með verklega kennslu á nýju fínu dúkkunum sem eru til upp í skóla. Hafþór hefur fjárfest í henni Önnu sem er stóra fallega dúkkan, svo er það sonur hennar sem enn hefur ekki fengið nafn. Við vorum að nokkuð ánægðar með okkur eftir daginn. Okkur tókst að miðla þeim hlutum sem mikilvægir eru í skyndihjálp og allir fóru glaðir heim. Það sem meira er að krakkarnir gátu þulið upp það sem sat eftir þennan annars fína fyrirlestur okkar. Í lok tímans buðumst við til að senda nemendum glærurnar sem við kenndum. Flest allir skráðu sig og voru áhugasamir. Á morgun er sunddagur og þá eru öllum bekkjum kennt. Tímaseðlar eru að sjálfsögðu tilbúnir og við hlökkum til morgundagsins.
25október
Það held ég nú góðir hálsar. Við stöllur ákváðum að taka á honum stóra okkar og láta aðeins á okkur reyna. Við sem sagt fengum leyfi til þess að vera með leiðbeinendanámskeið í skyndihjálp fyrir 7.-10. bekk. Við vorum með viðveru í skólanum allan daginn þar sem við vorum að undirbúa fyrirlesturinn. Við vorum einnig kennurum innanhandar þar sem alltaf eru einhver forföll í þessum fámenna en frábæra skóla. Bóklega kennslan heillar okkur báðar og höfum við gaman af að fá að kynnast skólastarfi sem er inn í skólanum sjálfun en ekki bara inn í íþróttasal. Við vorum með alls 74 glærur sem við ætluðum að komast yfir ásamt því að vera með verklegan þátt í endurlífgun.Vinnan við að setja upp þessa frábæru heimasíður okkar og vinnan við undirbúning fyrirlesturinn tók mest allan daginn. Við hittum svo Óla í íþróttahúsinu þar sem við fengum að vita hvaða sundaðferð við ættum að kenna á föstudag. Við hlökkum mikið til með smá stresspissi í blöðru að fara kenna unglingunum á Laugarvatni hvernig við getum bjargað mannslífi. Við hvetjum alla til að kíkja aðeins í skyndihjálparbókina til upprifjunar.
Stebba og Sigga hnoða 30x blása 2x. 100x á mínútu:)
24október
Þjóðaríþrótt Neskaupstaðarbúa, BLAK, var næst á dagskrá. Við settum tímaseðla upp m.t.t. til krakkablaks. 5. og 6.bekkur mættu fyrst og spreyttu sig í smá aðlögun og fengu svo að spila í lokin. Þar þurftum við aðeins að grípa inní með því að auðvelda reglurnar þar sem þetta virtist flækjast svolítið fyrir þessum greyjum, létum þau ekki hanga of lengi í vitleysunni. Hrós frá Óla fyrir það
Annars gekk þetta allt eins og vonast var til. Við virtumst vera með tæknina á hreinu og komum þessu bara ágætlega frá okkur. 7.-10. bekkur gerðu það sama nema þau léku yfir blaknet í stað badmingtonneta. Kom reyndar svolítið á óvart að hjá þeim þurftum við einnig að auðvelda reglurnar. þau voru reyndar mis vel stödd enda afar mikill aldursmunur í þessum hópi. (Stebba sá um kennslu í þessum tímum)
80 mínútna blaktími fyrir 1.-4. bek tók svo við eftir hádegi. Þar var mikið lagt uppúr leik, hermiþjálfun með bolta og grunnæfingum í stöðvaformi með falda sérhæfingu. Þau fengu svo að spreyta sig í spili miðað við reglur í krakkablaki-stig 1. Sá tími gekk ótrúlega vel, æfingaval gott og tímin í heild góður. (Sigga sá um kennslu í þessum tíma)
Þó svo að við höfum skipt kennslunni svolítið niður á okkur þennan dag þá vorum við að sjálfsögðu báðar á staðnum og vorum virkar á meðan hin var meira áberandi sem stjórnandi tímans.
24október
Tókum á móti 5. og 6. bekk, búnar að stilla upp hringþjálfun í áhaldaleikfimi/fimleikum. Kennslan gekk mjög vel, nemendurnir voru allir vel virkir þó svo að þeir væru mis vel á veg komnir í þessari íþrótt. Framfarir leyndu sér ekki og þá má með sanni segja að markmiðum tímans hafi að mnnsta kosti náðst. Við vorum nokkuð öruggar í móttökum og útskýringum enda með fimleikagráðu frá fröken Selfoss/Olgu
Hvað er svo betra en að enda 80 mínútna tíma á þolþjálfun með því að spila knattspyrnu. Við kenndum svo 7.-10. bekk eftir sama tímaseðli þó með ögn fleiri og erfiðari áherslum. Hóparnir fóru ánægðir í sturtu og kennaranemarnir nokkuð nettir
1. og 2. bekkur var svo mættur í sund og önnur okkar (vondi selurinn) var mætt í speedo-inn. Bringusundsfótatökin æfð eins og enginn væri morgundagurinn og tímanum slúttað með góðri samvisku. Óli var nokk sáttur og krílin virtust hafa gaman af tímanum.
Eftir hádegið Birtist svo 3. ár Menntaskólans og tókum við þar upphitun á svölum og nokkrar fitttnes-æfingar frá Óla, nemendurnir máttu svo velja hvort þeir myndu fara í "eigin þjálfun í þreksal, fittnes-æfingar á svölum eða spiluðu boltaíþrótt í salnum. tíminn rúllaði vel og kláruðu allir sitt verkefni rétt undir lok tímans, ástæðan fyrir þessari gífurlegu virkni var að sjálfsögðu hið fræga kaffi uppi í Menntó kl. 16.
(kenndum eftir tímaseðli frá Óla)
24október
Mættum á sundlaugarbakkann kl.8.15 og kenndum þar til hádegis, fimm kennslustundir. Í sundi eru 1. og 2. bekkur saman, 3. og 4. bekkur og svo framvegis. Þennan dag voru samræmd próf hjá 4. og 7. bekk og því voru enn færri nemendur en ella í lauginni. Skriðsund var þema dagsins. Kennslan sjálf gekk vonum framar og æfingavalið virtist henta nokkuð vel. Önnur okkar var ofan í lauginni með yngstu nemendunum og komum við til með að halda því áfram þar sem það reyndist mjög vel. Óli (sem stillir sér ætíð upp með tímaseðlana okkar fyrir framan sig, lítur hugsandi upp til að fylgjast með vinnubrögðum okkar og kommentar svo heil reiðinnar ósköp á seðlana góðu) var ánægður með sundseðlana. Hann vildi meina að tímarnir hefðu rúllað vel og benti okkur svo á góð ráð, enda maður með reynslu!! Dagurinn heppnaðist vel í heild sinni og inneign í banka reynslunnar jókst svo um munaði
24október
Jæja þá er kominn tími á að birta upplýsingar um velgengni okkar í vattvangsnáminu á Laugarvatni, og það á veraldarvefnum. Grunnskólinn hér á Laugarvatni er fámennur og því eru bekkirnir sameinaðir í kennslu. Einnig komum við aðeins nálægt kennslu Menntaskólanema
Við erum ekki vanar að tvínóna við hlutina og hentum okkur beint í þá djúpu. Þ.e.a.s. við byrjuðum að kenna 1. ári Menntaskólans á staðnum fimmtudaginn 18.október. Þá vorum við að kenna nemendum sem eiga að teljast til fullorðinna og aðstæður til kennslu því allt aðrar en í grunnskóla. Nemendurnir leytuðu til okkar, sér til fróðleiks og allur tíminn nýttist til kennslu en enginn tími fór í að reima skó, þerra tár, leysa úr rifrildum eða annað slíkt. Kennslan gekk því mjög vel og það sem mestu skiptir, rúllaði tíminn vel. Auk verklegrar kennslu þá vorum við í viðveru í grunnskólanum, hittum Sigmar, sem er þar allsráðandi, hann sýndi okkur skólann og spjallaði við okkur á léttu nótunum um vettvangsnámið. Tímaseðlarnir fæddust svo þar hver á eftir öðrum. Alles klar!!!